Fyrir rekstrarstjóra

Bætið daglegan rekstur með endurgjöf gesta

Sjáið hvað gengur vel, greinið áskoranir í rekstrinum og hjálpið öllum deildum að bæta upplifun gesta. Safnið endurgjöf, umsögnum og niðurstöðum greininga á einn stað með Loopon.

Fagfólk í gestrisni um öll Norðurlönd treystir okkur. 
Áskorunin Lausnin Ávinningurinn
Áskorunin Lausnin Ávinningurinn

Góður rekstur byggist á því að huga að smáatriðunum

Sem rekstrarstjórar berið þið ábyrgð á því að daglegur rekstur gangi vel og að þjónustan sé ávallt í háum gæðaflokki. En þegar endurgjöf gesta er dreifð milli deilda og samskiptaleiða getur verið erfitt að greina vandamál og sjá hvar þarf að bregðast við.

Yfirsýn skortir

Endurgjöf gesta berst úr ólíkum áttum og því getur verið erfitt að sjá hvernig daglegur rekstur hefur áhrif á heildarupplifun þeirra.

Endurtekin vandamál

Smávægilegir hnökrar í þjónustu geta valdið endurtekinni óánægju þegar erfitt er að greina mynstur í athugasemdum gesta.

Forgangsröðun er flókin

Þegar sinna þarf mörgum deildum og daglegum verkefnum er ekki alltaf auðvelt að vita hvaða umbætur eiga að hafa forgang.

Endurgjöf gesta berst úr ólíkum áttum og því getur verið erfitt að sjá hvernig daglegur rekstur hefur áhrif á heildarupplifun þeirra.

Smávægilegir hnökrar í þjónustu geta valdið endurtekinni óánægju þegar erfitt er að greina mynstur í athugasemdum gesta.

Þegar sinna þarf mörgum deildum og daglegum verkefnum er ekki alltaf auðvelt að vita hvaða umbætur eiga að hafa forgang.

Áskorunin Lausnin Ávinningurinn

Látið væntingar gesta móta daglegan rekstur

Loopon sameinar endurgjöf gesta, umsagnir á netinu og greiningu á árangri svo þið sjáið betur hvernig reksturinn hefur áhrif á ánægju gesta og hvar umbóta er þörf.

Skýr heildarmynd

Safnið könnunum, umsögnum og athugasemdum gesta á einn stað til að skilja hvernig þeir upplifa daglega starfsemi hótelsins.

Komið auga á mynstur

Greinið endurtekin vandamál, fylgist með viðhorfum gesta og komið auga á áskoranir í rekstrinum áður en þær hafa áhrif á fleiri gesti.

Skýr forgangsröðun

Sjáið hvað þarf að bregðast við og gefið teymunum betri grunn til að ráðast í hagnýtar umbætur.

Gerið bætta upplifun gesta að hluta af daglegu starfi

Nýtið endurgjöf gesta til að gera raunhæfar umbætur um allt hótelið. Hjálpið deildum að skilja væntingar gesta, fylgjast með árangri og tryggja jafnari gæði í upplifun þeirra frá komu til brottfarar.

Bætið daglegan rekstur

Nýtið innsýn í upplifun gesta til að greina veikleika í þjónustu, leysa endurtekin vandamál og bæta þá þætti upplifunarinnar sem skipta mestu máli.

Styrkið teymin ykkar

Deilið viðeigandi endurgjöf milli deilda, veitið góðri þjónustu viðurkenningu og eflið sameiginlega ábyrgð á gæðum.

Fylgist með árangrinum

Fylgist með ánægju gesta yfir tíma og sjáið hvernig breytingar á rekstrinum hafa áhrif á upplifun þeirra.

Nýtið innsýn í upplifun gesta til að greina veikleika í þjónustu, leysa endurtekin vandamál og bæta þá þætti upplifunarinnar sem skipta mestu máli.

Deilið viðeigandi endurgjöf milli deilda, veitið góðri þjónustu viðurkenningu og eflið sameiginlega ábyrgð á gæðum.

Fylgist með ánægju gesta yfir tíma og sjáið hvernig breytingar á rekstrinum hafa áhrif á upplifun þeirra.

Fagfólk í gestrisni treystir okkur

Ánægja gesta

Hvernig má auka ánægju hótelgesta?

Kynnið ykkur hvað hefur áhrif á ánægju gesta og fáið hagnýtar leiðir til að bæta upplifun þeirra á hótelinu.

Endurgjöf gesta

Gestakannanir: Hvers á að spyrja og hvenær?

Kynnið ykkur hvernig réttu spurningarnar geta leitt í ljós tækifæri til að bæta upplifun gesta á öllum stigum heimsóknarinnar.

Orðspor á netinu

Hlúið að orðspori hótelsins á netinu

Kynnið ykkur hvernig umsagnir gesta geta hjálpað ykkur að meta gæði þjónustunnar og styrkja orðspor hótelsins.

Faq

Hvernig Loopon styður daglegan rekstur

Kynnið ykkur hvernig Loopon hjálpar rekstrarstjórum að skilja endurgjöf gesta, bæta þjónustugæði og nýta niðurstöður greininga til umbóta í rekstri.

Bókið kynningu

Loopon sameinar endurgjöf gesta, umsagnir á netinu og greiningu á ánægju gesta svo rekstrarstjórar geti betur skilið hvernig daglegur rekstur hefur áhrif á upplifun þeirra. Þannig verður auðveldara að greina endurtekin vandamál, forgangsraða umbótum og stuðla að jöfnum þjónustugæðum.

Já. Loopon hjálpar ykkur að greina athugasemdir gesta, viðhorf þeirra og endurtekin umfjöllunarefni til að koma auga á mynstur í þáttum á borð við þrif, morgunverð, innritun og þjónustu. Þannig fæst skýrari mynd af því hvar umbóta kann að vera þörf í rekstrinum.

Loopon hjálpar ykkur að skilja hvað gestir kunna að meta og hvar þjónustan stenst ekki væntingar þeirra. Með því að fylgjast með þróun í ánægju og endurgjöf gesta getið þið greint hvar þjónustan bregst og tekið upplýstari ákvarðanir um umbætur í rekstri.

Já. Loopon hjálpar ykkur að miðla viðeigandi upplýsingum um upplifun gesta til ólíkra teyma og skapa sameiginlegan skilning á þjónustugæðum og því hvaða umbætur eiga að hafa forgang. Einnig verður auðveldara að koma auga á jákvæða upplifun gesta og festa í sessi verklag sem skilar árangri.

Loopon hjálpar ykkur að fylgjast með ánægju gesta, viðhorfum þeirra og þróun í endurgjöf yfir tíma. Með því að bera saman niðurstöður milli tímabila getið þið metið hvernig upplifun gesta þróast og hvort breytingar á rekstrinum skili tilætluðum árangri.

Já. Loopon gerir kleift að greina árangur margra hótela. Þannig geta rekstrarstjórar séð mun á ánægju gesta, komið auga á árangursríkt verklag og fundið tækifæri til umbóta á einstökum hótelum.

Bókið kynningu

Betri rekstur skapar betri upplifun fyrir gesti.

Jöfn þjónustugæði byggjast á því að huga að smáatriðunum í daglegum hótelrekstri. Allar deildir móta heildarupplifun gesta, hvort sem þær sinna þrifum, innritun, morgunverði eða annarri þjónustu við gesti. Með því að skilja endurgjöf gesta geta rekstrarstjórar greint endurtekin vandamál, séð hvað gengur vel og forgangsraðað umbótum sem skipta máli.

Loopon sameinar gestakannanir, umsagnir á netinu og greiningu á ánægju gesta svo rekstrarteymi hótela fái skýrari mynd af þjónustugæðum í öllum deildum. Með því að nýta endurgjöf til hagnýtra umbóta geta hótel tryggt meiri stöðugleika í rekstri, stutt við teymin sín og bætt upplifun gesta.

Góð gestrisni byggist nefnilega á því að vanda til verka í því daglega.