Loopon vörumerkið tekur næsta skref
Endurnýjuð ásýnd sem byggir á því sem skiptir mestu í gestrisni: að skilja gesti, bæta upplifun þeirra og efla tryggð til lengri tíma.
Góð gestrisni birtist í augnablikunum sem gestir muna eftir. Í móttökunum við innritun, alúðinni við smáatriðin, gæðum þjónustunnar og upplifuninni sem fær fólk til að vilja koma aftur.
Frá árinu 2007 hefur Loopon hjálpað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og veitingarekstri að skilja þessi augnablik með því að hlusta á álit gesta og nýta það til raunverulegra umbóta.
Í dag kynnum við endurnýjað vörumerki Loopon. Sveigjanlegri ásýnd, hannaða fyrst og fremst fyrir stafrænt umhverfi, sem endurspeglar bæði rætur okkar og áframhaldandi áherslu á að hjálpa fyrirtækjum að bæta upplifun gesta.
Við þróumst en höldum í sérkennin
Ásýnd Loopon hefur fylgt okkur frá árinu 2007. Í stað þess að byrja frá grunni höfum við byggt á þeim grunni sem fyrir er. Við höldum í það sem gerir Loopon auðþekkjanlegt en aðlögum ásýndina að því hvernig við miðlum efni og eigum samskipti við viðskiptavini í dag.
Endurnýjuð ásýnd felur í sér tvær útfærslur vörumerkisins sem styðja hvor aðra. Þær veita okkur meiri sveigjanleika á stafrænum miðlum, í notendaviðmótum og á öðrum samskiptaleiðum.
Þannig tökum við næsta skref með virðingu fyrir upprunanum og sköpum um leið svigrúm fyrir það sem fram undan er.
Álit gesta nýtist til að bæta upplifunina
Að skilja gesti hefur alltaf verið kjarninn í starfi Loopon. En að safna áliti þeirra er aðeins fyrsta skrefið. Raunverulegur ávinningur felst í að greina mynstur, koma auga á tækifæri og nýta þekkinguna til aðgerða sem skipta máli.
Þess vegna nær áhersla okkar lengra en til kannana, umsagna og skýrslugerðar. Við viljum hjálpa starfsfólki í ferðaþjónustu og veitingarekstri að skilja upplifun gesta, hvað skiptir þá mestu og hvar umbætur geta skilað mestum árangri.
Kerfið okkar sameinar álit gesta, umsjón með orðspori á netinu og gagnagreiningu. Þannig verður auðveldara að skilja það sem gestir segja og bregðast við með markvissum hætti.

Ólíkar þarfir. Sameiginlegt markmið.
Engin tvö fyrirtæki í ferðaþjónustu og veitingarekstri eru nákvæmlega eins.
Hótelkeðjur þurfa yfirsýn yfir árangur margra hótela og um leið að efla starfsfólk á hverjum stað. Sjálfstæð hótel byggja á sterkum persónulegum tengslum og eftirminnilegri dvöl. Veitingastaðir þurfa að skilja hvaða smáatriði hafa áhrif á þjónustuna og hvort gestir koma aftur. Áfangastaðir þurfa að huga að allri upplifun ferðamannsins, frá komu til brottfarar.
Ólíkar áskoranir kalla á ólík sjónarhorn. En markmiðið er sameiginlegt: að skilja gesti betur og skapa upplifun sem er þess virði að snúa aftur fyrir.
Endurnýjuð nálgun okkar endurspeglar þessa fjölbreytni, með aukinni áherslu á þarfir, forgangsmál og tækifæri fyrirtækjanna sem við vinnum með.

Við byggjum á reynslu og horfum fram á veginn.
Ferðaþjónusta og veitingarekstur eru í stöðugri þróun. Væntingar gesta breytast, ný tækni kemur fram og tækifærunum til að skilja og bæta upplifun gesta fjölgar sífellt.
Loopon þróast með greininni.
Endurnýjað vörumerki okkar er ein birtingarmynd þeirrar þróunar. Það sem meira máli skiptir er að það endurspeglar áherslu okkar á að gera álit gesta auðskiljanlegra, þekkinguna gagnlegri og umbætur viðráðanlegri fyrir fólkið sem skapar góða upplifun fyrir gesti á hverjum degi.
Því þótt greinin haldi áfram að breytast er eitt sem stendur óhaggað.
Betri upplifun gesta hefst með betri skilningi.
Viljið þið skilja betur hvað gestirnir ykkar eru að segja?
- Sjáið hvernig Loopon virkar.
- Komið auga á tækifæri til umbóta.
- Nýtið álit gesta til að ná árangri.
